Haustkransagerð 22.september
Haustkransagerð 22.september
HAUSTKRANSAGERÐ Í HÆ BLÓM
Komdu og eigðu notalega hauststund með okkur og búðu til þinn eigin haustkrans.
Við vinnum með falleg náttúruleg efni, haustliti og ólíka áferð. Hver og einn hannar sinn krans undir leiðsögn Bjarma.
Allt efni er innifalið og við bjóðum upp á léttar veitingar á meðan við njótum samverunnar.
Þátttakendur eru einnig hvattir til að líta í kringum sig í náttúrunni, tína fallegt haustlegt efni og taka með sér til að gera kransinn enn persónulegri.
Í lok stundarinnar ferð þú heim með þinn eigin handgerða haustkrans sem fær að breytast og þorna fallega með haustinu.
Takmarkað pláss í boði.
Verð: 19.900 kr.
22. september. kl 19:00-21:00
Greiðsla jafngildir skráningu. Verði forföll hjá þátttakanda eru 50% námskeiðsgjaldsins endurgreidd.
Athugið: Við hvetjum þig til að kanna rétt þinn til endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá þínu stéttarfélagi – mörg stéttarfélög endurgreiða námskeið af þessu tagi.
Hæ Blóm · Grímsbær
Hæ Blóm!
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
