Skilmálar
Pantanir
Þegar pöntun kemur í hús í gegnum tölvupóst eru greiðsluupplýsingar sendar til kaupanda. Þegar greiðsla hefur borist fer pöntunin í gang og berst kaupanda við fyrsta tækifæri.
Afhendingartími
Afhendingartími er að jafnaði 3–5 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Varan er sótt af kaupanda hjá Hæ Blóm, í Efstalandi 26, 108 Reykjavík, í Grímsbæ við Bústaðaveg. Það er líka hægt að senda vöruna með pósti en þá verður móttakandi að greiða fyrir sendinguna.
Verð
24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Hæ Blóm sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan er ófáanleg er kaupandinn látinn vita og endurgreiðsla á sér stað, sé þess óskað.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vörum sem eru keyptar í verslun eða pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun um millifærslu fylgi.
Skilaréttur gildir ekki um:
-
Fersk afskorin blóm.
-
Aðrar ferskvörur (s.s. plöntur, lifandi efni eða vörur með takmarkaðan líftíma).
-
Sérpantanir eða sérsniðnar vörur, nema um galla sé að ræða.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru. Viðskiptavinir skulu tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan 14 daga frestsins, en það er m.a. hægt að gera með því að senda tölvuskeyti á netfangið haeblom(hjá)haeblom.is eða senda Hæ Blóm staðlað uppsagnareyðublað sem er að finna á vef Neytendastofu, www.neytendastofa.is (þar sem jafnframt er að finna frekari upplýsingar um skilarétt), en í kjölfarið skal Hæ Blóm láta viðskiptavini í té kvittun fyrir móttöku uppsagnarinnar.
Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016 hvílir á viðskiptavininum, sbr. g-liður 1. mgr. 5. gr. laganna.
Viðbót í skilmála – hreinlæti og plöntuheilsa
Af hollustu-, hreinlætis- og plöntuverndarsjónarmiðum er ekki unnt að taka við skilum eða endurkomu á blómaefni, hvort sem um ræðir ferskt eða þurrkað, sem hefur verið utan verslunarumhverfis Hæ Blóms eftir afhendingu.
Þetta á m.a. við um vörur sem kunna að bera með sér smit, meindýr eða aðra óæskilega örveru, sem geta haft neikvæð áhrif á fersk afskorin blóm, plöntur og annað lifandi efni í versluninni.
Af þessum sökum gildir skilaréttur ekki um:
-
Fersk afskorin blóm.
-
Plöntur og aðrar ferskvörur.
-
Þurrkað blómaefni eða náttúruleg efni sem hafa verið utan verslunarumhverfis í lengri tíma.